ANONYMOUS

Title:BÁRÁÐUR
Subject:FICTION Scarica il testo


Íslensk ævintýri
BÁRÁÐUR



Einu sinn var karl og kerling í koti. Þau áttu ekkert barn. Þótti þeim það mjög leiðinlegt, en gátu ekki að gert. Þeim varð oft sundurorða út af þessu og kenndu hvort öðru um. Að lokum varð fullkomið ósamlyndi á milli þeirra og rifrildi, því að hvorugt vildi meðkenna, að það væri sér að kenna, að þau gátu ekki eignazt krakka. Karlinn fór þá í burtu í reiði sinni og kvaðst skyldu ganga næst lífi hennar, ef hún yrði ekki komin í burtu, þegar hann kæmi heim aftur.
Þegar hann var farinn, lagðist kerling upp í rúm og grét beisklega, því að henni þótti vænt um bónda sinn. Þegar hún hugði, að tími væri til kominn til þess að sjá fyrir miðdegismatnum, reis hún á fætur og fór að sækja vatn í á, sem rann nálægt kotinu. Þegar hún kemur að ánni, sér hún lágan mann, rauðskeggjaðan, sitja á steini í miðri ánni. Hann kastar kveðju á kerlingu og spyr: "Hvers vegna liggur svo illa á þér?"
Hún svarar: "Bóndi minn er svo vondur við mig, af því við eigum ekkert barn, og nú hefur hann skipað mér í burtu. Þetta hryggir mig mjög mikið."
"Viltu, að ég hjálpi þér?" segir hann. "Ég held ég verði fegin," segir kerling, "en ekki hafði ég ætlað að hafa fram hjá karli mínum." "Ekki muntu þess þurfa, þó að ég hjálpi þér," segir Rauðskeggur og glottir við. Seildist hann þá ofan í ána og tók þar silung og fékk henni. Síðan sagði hann: "Þú skalt sjóða silunginn og éta, en þú mátt hvorki drekka soðið af honum né éta beinin. Þegar þú hefur étið silunginn, munt þú verða barnshafandi og eignast son. Hann verður þú að gefa mér, þegar hann er sjö ára, og mun ég þá vitja hans."
Kerling lofaði að gera allt, eins og hann vildi, og með það skildu þau. Kerling fór svo heim með silunginn, sauð hann og át síðan, Henni þótti hann góður og langaði í beinin og soðið. "Það getur ekki gert neitt til, þó ég smakki á soðinu og bíti í beinin," hugsaði hún, "þetta hefur náttúrlega verið eintóm vitleysa úr honum Rauðskegg mínum." Og með það át hún hvort tveggja.
Þegar þessu var lokið, lagðist hún upp í rúm og lá þar, þar til karl hennar kom heim. Þegar hann sá hana, varð hann afar reiður og segir: "Þú ert þá hér enn, ólukku dækjan!" "Vertu góður við mig, karlinn minn, því að nú finnst mér vera skipt um hagi mína," segir hún. "Vertu mér þá velkomin," segir hann.
Nú líður að þeim tíma, að kerling verður léttari, og fæðir sveinbarn frítt og efnilegt. - Þetta varð til mikillar gleði fyrir karl og kerlingu, og kom þeim nú mjög vel saman, eftir að barnið kom til sögunnar. Það var mjög frábært og hét Báráður eftir vilja foreldranna. Var hann yndi þeirra og augasteinn. Segir nú ekki af þeim, fyrr en drengurinn var nærri því sjö ára. Þá tekur móðir hans ógleði mikla. Þeir feðgar spyrja, hvað valdi hryggð hennar. Hún var lengi treg til að segja, en þó fór svo, að hún sagði þeim frá rauðskeggjaða manninum og kaupum þeirra. Báráður hló að þessu og sagði, að þau mættu verða fegin að losast við sig, því að hann væri þeim aðeins til þyngsla. - Karl og kerling eru nú mjög hnuggin og sorgbitin út af því, ef þau þurfi nú að sjá á bak syni sínum, sem þeim þótti svo vænt um. - Nú líður, þar til afmælisdagurinn kemur. Þá segir Báráður, að það sé bezt fyrir þau karl og kerlingu að fara út í skóg í dag, því þeim þyki líklega ekki svo skemmtilegt að sjá, þegar Rauðskeggur fari með sig í burtu. En til þess að þau geti eitthvað gert, sagði hann þeim að fara með rekkjuvoðirnar úr rekkjum sínum og tína úr þeim flær og lýs. Þau kvöddu þá son sinn með miklum harmi og lögðu af stað með rekkjuvoðirnar.
Þegar þau voru farin, fór Báráður inn, settist á pallinn og var alls ókvíðinn. Að stundu liðinni var drepið á dyr, og gekk Báráður til dyra. Sá hann þá, að lágur maður rauðskeggjaður stóð við bæjardyrnar. Hann kastar kveðju á Báráð og segir: "Heill sértu, sonur góður." "Svo sértu líka. En ég er ekki þinn sonur, heldur karls og kerlingar," segir Báráður. "Já, svei kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át, því að hvorki ætlaðist ég til, að yrði í þér aflið né vitið," segir Rauðskeggur.
"Blessuð veri móðir mín fyrir það," segir strákur.
"Eru karl og kerling heima núna?" spyr Rauðskeggur.
"Nei," svarar Báráður.
"Hvar eru þau?" "Þau eru út í skógi," segir strákur.
"Hvað eru þau þar að gera?"
"Þau ætluðu að skilja eftir það, sem þau fyndu, en koma með það, sem þau fyndu ekki," sagði strákur.
"Að koma með það, sem þau finna ekki, en skilja það eftir, sem þau finna? Það skil ég ekki eða hvernig getur þú heimfært mér það, sonur góður?" segir karl.
"Ekki er ég þinn son, og ekki segi ég þér neitt um þetta, nema þú lofir mér að vera sjö ár hjá móður minni enn þá," segir Báráður.
"Það má ég ekki," segir karl.
"Jæja þá, þú færð þá ekkert að vita," segir strákur. Þeir þráttuðu dálítið um þetta, en svo lauk, að Rauðskeggur lofaði Báráði að vera sjö ár hjá móður sinni enn þá, ef hann fengi að vita það, sem hann spurði um. "Jæja þá," segir Báráður. "Þau fóru með rekkjuvoðirnar sínar út í skóg og ætluðu að tína úr þeim flærnar og lýsnar. Og eins og þú getur skilið, skilja þau eftir það, sem þau finna, en koma heim með það, sem þau finna ekki í rekkjuvoðunum." "Ó, svei kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át. Hvorki ætlaðist ég til þess, að í þér yrði aflið né vitið," segir karl, um leið og hann fór.
Um kvöldið komu karl og kerling heim. Urðu þau glaðari en frá megi segja, þegar þau sjá son sinn kyrran heima. Spurðu þau hann, hvort enginn hefði komið. "Jú," segir hann. "Hann kom, þessi rauðskeggjaði maður, sem þú sagðir okkur frá, en hann ætlar að lofa mér að vera sjö ár enn þá hjá ykkur." Þau urðu mjög glöð af þessum tíðindum og óskuðu, að þau þyrftu aldrei að sjá af honum. Nú liðu árin, tíðindalítið, þar til Báráður er langt kominn á fjórtánda árið, þá taka þau karl og kerling ógleði mikla og kvíða því, ef þau þurfi nú að missa Báráð. Hann hughreysti þau eftir mætti og sagði, að þau mættu verða því fegin, að hann færi frá þeim, en þau tóku því allfjarri.
Nú kemur afmælisdagurinn, þegar Báráður er fjórtán vetra gamall. Var hann nú talinn afbragð allra annarra ungra manna bæði að líkamlegu atgervi og vitsmunum. Má því nærri geta, að þau karl og kerling unnu honum hugástum. Segir þá Báráður við foreldra sína, að það sé bezt fyrir þau að fara út í skóg og vera þar um daginn, því að þeim þyki að líkindum lítil skemmtun, þegar Rauðskeggur fari með hann. Enn fremur sagði hann þeim að fara með svínin þeirra með sér. Þau voru ellefu að tölu og voru höfð í stíu undir baðstofupalli. "Ekki þurfið þið samt að hleypa þeim út, því að það geri ég sjálfur."
Þegar hann hafði þetta mælt, skundaði hann til stíunnar og tók öxi mikla í hönd sér. Hjó hann þá eitt svínið sundur í miðju og batt annan helminginn á bakið á öðru svíni, en hinum helmingnum kastaði hann í stíuna. Síðan héldu karl og kerling af stað með svínin, en Báráður settist í mestu makindum inn á pall.
Eigi leið langt áður drepið var á dyr. Báráður gengur út, og sér hann þá, hvar Rauðskeggur er kominn, sem hann átti tal við fyrir sjö árum. Hann kastar kveðju á Báráð og segir: "Heill sértu, sonur góður." "Það sért þú líka, en ekki er ég þinn son, ég er sonur karls og kerlingar." "Já, svei kerlingunni, sem soðið drakk og beinin át. Hvorki ætlaðist ég til, að í þér yrði aflið eða vitið," segir Rauðskeggur.
"Blessuð veri móðir mín fyrir það," segir Báráður.
"Ósköp ert þú orðinn stór, sonur góður," mælti Rauðskeggur.
"O, ekki held ég það geti nú heitið," segir Báráður.
"Eru þau heima, karl og kerling?" spyr Rauðskeggur.
"Nei." "Hvar eru þau nú?" "Þau fóru út í skóg í morgun." "Hvað starfa þau þar?" "Þau fóru með hálft ellefta svín þangað og ætluðu að gæta þeirra." "Með hálft ellefta svín," segir Rauðskeggur, "það er ómögulegt. Annaðhvort hafa þau hlotið að vera tíu eða ellefu. Eða hvernig getur þú fullvissað mig um það, sonur góður, að það hafi verið hálft ellefta svín, sem þau fóru með?" "Ég segi þér það ekki, nema þú lofir mér að vera í sjö ár enn hjá móður minni," segir Báráður.
"Það má ég alls ekki," mælti Rauðskeggur, "því að þá verður þú orðinn mitt ofurefli."
Hvort sem þeir þráttuðu lengur eða skemur um þetta, þá fór svo að lokum, að Rauðskeggur lofaði Báráði ...